Englandsmeistarar Manchester United hafa ekki unnið leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili þegar belgíski miðjumaðurinn Marouane Fellanini hefur verið í byrjunarliðinu.
Fellaini hefur alls ekki fundið taktinn í liði United en félagið pungaði út 27,5 milljónum punda fyrir Belgann hárprúða þegar það fékk hann frá Everton í sumar.
Fallaini hefur enn ekki náð að skora fyrir United og þeim fer ört fjölgandi stuðningsmönnum Manchester-liðsins sem finnst félagið hafa kastað peningum út um gluggann þegar það fjárfesti í leikmanninum.