Hull og Charlton í átta liða úrslitin

Robert Koren skoraði fyrir Hull í kvöld og hér leikur …
Robert Koren skoraði fyrir Hull í kvöld og hér leikur hann á leikmann Brighton. AFP

Úrvalsdeildarlið Hull City og B-deildarlið Charlton Athletic tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Hull sigraði B-deildarlið Brighton, 2:1, á heimavelli. Curtis Davies og Robert Koren komu Hull í 2:0 en José Leonardo Ulloa minnkaði muninn fyrir Brighton. Hull mætir Sunderland í átta liða úrslitunum.

Charlton vann annað B-deildarlið, Sheffield Wednesday, 2:1 á útivelli. Callum Harriott kom Charlton yfir, Leon Best jafnaði en Simon Church skoraði sigurmark Lundúnaliðsins. Charlton mætir C-deildarliði Sheffield United í átta liða úrslitunum, en með þessum úrslitum varð ekkert af því að Sheffield-liðin tvö myndu mætast þar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert