Allt útlit er fyrir að ítalski landsliðsframherjinn Mario Balotelli gangi í raðir Liverpool frá AC Milan, hugsanlega áður en vikan er úti.
Ljóst er að félögin hafa átt í viðræðum en það hefur fulltrúi AC Milan staðfest við opinbera sjónvarpsstöð félagsins. Þá er haft eftir Balotelli sjálfum á Sky Italia að þetta sé hans síðasti dagur hjá AC Milan.
Í frétt Daily Mail segir að samkomulag um kaupverð hafi þegar náðst og að Liverpool muni greiða 16 milljónir punda fyrir Balotelli, jafnvirði 3,1 milljarðs króna.