Argentínski miðvörðurinn Federico Fazio gekk í dag til liðs við Lundúnaliðið Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu frá Sevilla á Spáni og gerði fjögurra ára samning við Tottenham.
Fazio lék með Sevilla frá árinu 2007 og lék 194 leiki fyrir félagið í spænsku 1. deildinni og var einn lykilmanna liðsins þegar Sevilla vann Evrópudeild UEFA í vor eftir sigur á Benfica frá Portúgal í úrslitum.
Fazio er 27 ára, 195 sentimetrar á hæð og á að baki tvo A-landsleiki fyrir Argentínu.