Song kominn til West Ham

Alex Song.
Alex Song. AFP

West Ham staðfesti í dag að það hafi fengið miðjumanninn Alex Song að láni frá Barcelona út leiktíðina.

Mörg félög vildu fá kamerúnska miðjumanninn til liðs við en að lokum hafði West Ham best í baráttunni.

Song, sem er 26 ára gamall, hefur verið á mála hjá Barcelona síðustu tvö tímabilin en Börsungar keyptu hann frá Arsenal sumarið 2012 og greiddu fyrir hann 15 milljónir punda. Song hefur spilað 39 deildarleiki fyrir Barcelona og varð meistari með liðinu tímabilið 2012-13.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka