Harry Redknapp, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins QPR, sagði á fréttamannafundi í morgun að hann væri ekki í þann veginn að kaupa Kolbein Sigþórsson af Ajax.
Vangaveltur voru uppi um það í enskum fjölmiðlum í morgun en QPR hafði hug á að fá Kolbein í sínar raðir síðasta sumar.
„Það er talsvert síðan við reyndum að fá hann. Það er ekkert til í þessu núna,“ sagði Redknapp á fundinum.