Argentínski framherjinn Luciano Vietto leikmaður spænska liðsins Villareal er á óskalista Liverpool.
Brendan Rodgers knattspyrnustjóri Liverpool hyggst reyna að landa Vietto til Anfield í sumar en þessi 21 árs gamli framherji hefur farið á kostum á leiktíðinni. Hann hefur skorað 18 mörk og átt 6 stoðsendingar.
„Hann gæti samið við Liverpool en við vitum að það er áhugi frá Real Madrid sem og hjá tveimur liðum í þýsku Bundesligunni, “ segir Jorge Cysterpiller umboðsmaður Argentínumannsins.