Wenger ósáttur með leiktímann

Arsene Wenger.
Arsene Wenger. AFP

Arsene Wenger vill að komið sé í veg fyrir að knattspyrnuyfirvöld á Englandi setji nokkurn tímann aftur undanúrslitaleik í FA bikarnum á dagskrá á sama tíma og stórleikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Arsenal mætir Reading á Wembley kl. 16:20, einungis 10 mínútum fyrir stórleik Chelsea og Manchester United í úrvalsdeildinni.

,,Það kemur mér á óvart að þetta hafi ekki verið skoðað í sjónvarpssamningum vegna þess að það sem hefur átt sér stað, eitthvað sem hefði átt að vera skipulagt, er hagsmunaárekstur milli tveggja sjónvarpsstöðva sem borga háar upphæðir fyrir knattspyrnu.“  

Wenger hélt því einnig fram að undanúrslitaleikur FA bikarsins ætti ekki að vera í keppni við úrvalsdeildarleik. ,,Maður vill ekki að keppnin rekist á aðrar. Það kemur mér á óvart.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert