Nigel Clough var í dag rekinn úr starfi sem knattspyrnustjóri enska C-deildarliðsins Sheffield United.
Sheffield United hafnaði í fimmta sæti í deildinni undir stjórn Clough og tókst ekki að komast áfram í umspilinu um laust sæti í B-deildinni. Clough hefur verið stjóri félagsins frá því í október 2013 en þar áður var hann við stjórnvölinn hjá Burton Albion og Derby.