Önnur umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu heldur áfram í dag þegar sex leikir eru á dagskrá. Fylgst er með gangi mála í allan dag í ENSKA BOLTANUM Í BEINNI hér á mbl.is.
Fyrsti leikur dagsins hefst klukkan 11.45 þegar Southampton fær Everton í heimsókn. Klukkan 14 eru svo fimm leikir á dagskrá þar sem Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea eru meðal annars í eldlínunni og mæta Newcastle.
Leikir dagsins:
11.45 Southampton – Everton
14.00 West Ham – Leicester
14.00 Tottenham – Stoke
14.00 Watford – West Brom
14.00 Sunderland – Norwich
14.00 Swansea – Newcastle
Smellið á ENSKA BOLTANN Í BEINNI til að opna beinu lýsinguna hér á mbl.is.