Cole genginn í raðir Celtic

Carlton Cole.
Carlton Cole. AFP

Framherjinn Carlton Cole er genginn í raðir skoska meistaraliðsins Celtic og hefur samið við liðið til tveggja ára.

Cole, sem er 32 ára gamall, var samningslaus en hann hefur æft með Celtic síðustu vikurnar eftir að hann yfirgaf West Ham.

Cole hefur spilað með Chelsea, Wolves, Charlton, Aston Villa og West Ham og hefur skorað samtals 85 mörk í 380 leikjum með þesum liðum og þá hann að baki sjö leiki með enska landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert