Christian Benteke, framherji Liverpool, var fyrirmunað að skora þegar Liverpool laut í lægra haldi gegn West Ham og féll úr leik í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu karla í kvöld.
Benteke skaut níu sinnum að marki West Ham og átti þrisvar sinnum fleiri marktilraunir en næsti leikmaður Liverpool.
Benteke hefur nú mistekist að skora í síðustu 11 leikjum liðsins og belgíski landsliðsframherjinn á enn eftir að finna netmöskva andstæðinganna í leikjum Liverpool árið 2016.
„Þetta er líklega ekki skemmtilegasti tíminn á ferlinum hans, en hann verður bara að leggja hart að sér og halda áfram. Hann þráir að skora og við þurfum á mörkum frá honum að halda. Við munum halda áfram að vinna með honum og reyna að bæta hans leik,“ sagði Klopp um frammistöðu Benteke í kvöld.