„Manchester United rústaði lífi mínu“

Anthony Martial og Samantha Jaquelinet eru ekki lengur saman.
Anthony Martial og Samantha Jaquelinet eru ekki lengur saman. AFP

Franski framherjinn Anthony Martial gekk til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United fyrir tæplega ári en þau félagaskipti höfðu mikil áhrif á fjölskyldulífið.

Martial, sem er 20 ára gamall, gekk til liðs við United frá AS Monaco fyrir væna summu í lok ágúst á síðasta ári. Hann skoraði 17 mörk á sínu fyrsta tímabili og naut strax mikilla vinsælda hjá félaginu.

Martial var þá giftur Samönthu Jaquelinet en saman eiga þau eitt barn. Hún heldur því fram að Manchester United hafi eyðilagt hjónaband þeirra en hún greinir frá þessu í viðtali við The Sun.

Þau eru skilin í dag en Samantha fór frá Martial. Franski kappinn er nú kominn með nýja kærustu.

„Það breyttist allt eftir að hann samdi við Manchester United. Knattspyrnumenn sem spila á Englandi eru eins og kóngar. Þeir eiga mikinn pening og athyglin sem þeir fá er ótrúleg, eins og þeir búi í öðrum heimi,“ sagði Samantha.

„Þegar hann komst í sviðsljósið sprakk allt. Það liggur við að þessar ungu stelpur hafi kastað sér í fangið á honum. Mér var sagt að Manchester United væri fjölskylduklúbbur en við fengum enga leiðsögn. Manchester United er búið að rústa lífi mínu,“ sagði hún að lokum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert