„Okkur gekk illa að ná réttu flæði í leikinn í fyrri hálfleik og við fengum ódýr mörk á okkur. Við komum sterkari í seinni hálfleikinn en það dugði ekki til," sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal eftir 3:1 tap gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Arsenal er nú í fimmta sæti og ekki að spila eins og lið sem ætlar að vera í toppbaráttu.
„Framherjarnir okkar komust ekki inn í leikinn í fyrri hálfleik og það gekk illa að stjórna miðsvæðinu. Við munum berjast um að ná einu af fjóru efstu sætunum núna," sagði Frakkinn.