Enska knattspyrnufélagið Bristol City hefur vikið John Pemberton úr starfi en hann var aðstoðarþjálfari liðsins.
Hörður Björgvin Magnússon leikur með Bristol og mun hann því fá nýjan aðstoðarþjálfara. Eftir góða byrjun á leiktíðinni hefur ekkert gengið hjá Bristol og er liðið nú í fallsæti í 1. deildinni.