Wayne Rooney, knattspyrnumaður hjá Everton, er mættur fyrir rétt en hann er ákærður fyrir ölvunarakstur. Atvikið átti sér stað 1. september síðastliðinn. Samkvæmt Sky hefur Rooney játað sök.
Mál Rooneys er rekið fyrir dómstólum í Stockport í norðvesturhluta Englands. Þegar atvikið átti sér stað var Rooney handtekinn þegar í stað en látinn laus gegn tryggingu skömmu seinna.
Hann gæti átt yfir höfði sér himinháa sekt auk ökuleyfissviptingar. Enska blaðið Mirror heldur því fram að Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton, muni sekta Rooney um tveggja vikna laun fyrir athæfið. Sú upphæð gæti numið tæpum 50 milljónum króna.
Rooney og eiginkona hans Coleen Rooney eiga von á sínu fjórða barni. Þegar Rooney var handtekinn var eiginkona hans í útlöndum en henni ku víst ekki leiðast að skella sér í sólina.
Rooney spilaði í gær gegn gamla fótboltaliðinu sínu Manchester United og fóru leikar ekki vel fyrir lið Rooneys, sem tapaði 4-0 fyrir United.