Eiður Smári Guðjohnsen og Bjarni Þór Viðarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar á Vellinum á Símanum Sport í kvöld.
Á meðal umræðuefna þáttarins var rauða spjaldið sem Virgil van Dijk fékk fyrir að brjóta á Alexander Isak í leik Liverpool og Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Voru þeir Eiður og Bjarni sammála um að dómurinn hafi verið kolrangur.
„Í rauninni er þetta er ekki neitt,“ sagði Eiður Smári meðal annars þegar rætt var um atvikið.
Umræðurnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.