Ungur stuðningsmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, Dáire, upplifði drauminn er hann mætti á leik Liverpool og West Ham í enska deildabikarnum á dögunum.
Tilfinningarnar báru drenginn ofurliði fyrir leik þegar einkennislag Liverpool You'll Never Walk Alone var spilað því drengurinn hágrét.
Vakti myndskeið af atvikinu mikla athygli og vildi félagið gleðja drenginn unga. Var glaðningurinn af dýrari gerðinni, því honum var boðið á æfingasvæði félagsins af sjálfum Jürgen Klopp.
Þegar þangað var komið spjallaði hann við þýska stjórann og fékk að hitta nokkra leikmenn sömuleiðis, áður en hann fylgdist með æfingu liðsins.
Myndband af draumadegi Dáire má sjá hér fyrir neðan.
@liverpoolfc An emotional way to start your Christmas 🥹 A day Dáire will never forget ❤️
♬ original sound - Liverpool FC