Fóru illa með West Ham

Crystal Palace vann sannfærandi sigur,
Crystal Palace vann sannfærandi sigur, AFP/Ben Stansall

Crystal Palace fór illa með West Ham, 5:2, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Selhurst Park í London í dag. 

Mörk Palace skoruðu Michael Olise, Eberechi Eze, Jean-Philippe Mateta með tvö og það fimmta var sjálfsmark. Þá skoraði Michail Antonio fyrir West Ham en hitt mark liðsins var sjálfsmark. 

Crystalp Palace er í 14. sæti með 36 stig en West Ham er í áttunda sæti með 48 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert