Aðstoðarmaður Klopp eftirsóttur

Pepijn Lijnders ásamt Mohamed Salah.
Pepijn Lijnders ásamt Mohamed Salah. AFP

Austurríska knattspyrnufélagið RB Salzburg vill fá aðstoðarþjálfara Liverpool Pep Ljinders til að taka við taumunum hjá karlaliði félagsins. 

Jürgen Klopp stýrir Liverpool í síðasta sinn næstu helgi en Ljinders mun yfirgefa félagið ásamt honum eftir leikinn. 

Ljinders hefur verið orðaður við Ajax og Besiktas en nú er áhuginn mestur frá Salzburg ef marka má enska miðla úr Liverpool-borg. 

Salzburg er í öðru sæti austurrísku deildarinnar, tveimur stigum á eftir Strum Graz þegar ein umferð er eftir. 

Salzburg-liðið hefur algjörlega einangrað austurríska meistaratitilinn síðustu ár en liðið hefur unnið níu titla í röð og verið fastur þátttakandi í Meistaradeildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka