City tapað öllum leikjum á leikvangi kvöldsins

Ekkert hefur gengið hjá lærisveinum Pep Guardiola á Tottenham Hotspur-leikvanginum.
Ekkert hefur gengið hjá lærisveinum Pep Guardiola á Tottenham Hotspur-leikvanginum. AFP/Oli Scarff

Manchester City hefur ekki riðið feitum hesti frá viðureignum sínum gegn Tottenham Hotspur á samnefndum leikvangi síðarnefnda liðsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Man. City heimsækir heimamenn á Tottenham Hotspur-leikvanginn í kvöld og freistar þess að vinna sinn fyrsta leik þar, skora sitt fyrsta mark og ná um leið toppsætinu í deildinni.

Í þeim fjórum leikjum sem Man. City hefur spilað á vellinum hefur liðið tapað þeim öllum, ekki tekist að skora eitt einasta mark og fengið á sig átta mörk.

Er það þrátt fyrir að Man. City hafi átt 74 skot í leikjunum fjórum með vænt mörk (e. xG) upp á 7,43.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka