Ten Hag tjáir sig um stöðu fyrirliðans

Bruno Fernandes er fyrirliði Manchester United.
Bruno Fernandes er fyrirliði Manchester United. AFP/Oli Scarff

Erik ten Hag knattspyrnustjóri Manchester United var á blaðamannafundi spurður út í þann orðróm að Bruno Fernandes fyrirliði gæti yfirgefið félagið í sumar. 

Ten Hag sat fyrir svörum vegna leik Manchester United gegn Newcastle annað kvöld á Old Trafford. 

Fernandes hefur verið orðaður frá félaginu síðastliðna viku en ten Hag gaf lítið fyrir orðróminn. 

„Ég var nú þegar búinn að svara því í síðustu viku. Hann er klárlega mjög mikilvægur hlekkur í okkar liði,“ sagði Hollendingurinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka