Bannfærði Alonso sig sjálfur gagnvart Ferrari?

Alonso hefur átt þann draum frá barnsaldri að keppa fyrir …
Alonso hefur átt þann draum frá barnsaldri að keppa fyrir McLaren. ap

Fernando Alonso hafnaði tilboði um að fá að spreyta sig hjá Ferrari fyrir um sjö árum og er það sagt ástæða þess að liðið hefur aldrei sýnt því áhuga á að fá hann í sínar raðir. Liðsstjórinn Jean Todt segir ástæðuna reyndar þá að hann hafi talið Kimi Räikkönen henta Ferrari betur en Alonso.

Todt segir að samningur hafi nánast verið á borðinu á sínum tíma er umboðsmenn Alonso hafi kippt að sér höndum. Eftir að hafa hafnað boði Ferrari beindi Flavio Briatore Alonso inn í formúluna, fyrst hjá Minardi og síðar Benetton og Renault.

“Ferrari hefur aldrei rætt við Alonso,” segir Todt í viðtali við þýska vikuritið Auto Motor und Sport í dag. “Þeir Kimi eru sömu getu en mér fannst Kimi henta mér og Ferrari betur,” segir hann.

Todt segist ekki hafa myndað samskonar samband við Räikkönen og við forvera hans, Michael Schumacher. “Mér geðjast Kimi, hann er hæverskur og alls enginn hrokagikkur, en ég þekki hann þó ekki nógu vel ennþá,” segir Ferraristjórinn í samtalinu.

Todt þykir og gefa til kynna að samband Felipe Massa og Räikkönen væri ekki í sömu skorðum og samskipti Massa og Schumacher. “Þeir virða hvorn annan og eru álíka metnaðarfullir. Michael og Felipe voru vinir en Kimi og Felipe þekkjast ekki mjög vel enn sem komið er. Mikilvægast er að þeir starfi saman og það gera þeir ágætlega,” segir Todt.

Jean Todt
Jean Todt reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert