Schumacher og Alonso keppa um Lárusinn

Alonso með heimsmeistaragripinn og Schumacher sérstaka viðurkenningu á uppskeruhátíð FIA …
Alonso með heimsmeistaragripinn og Schumacher sérstaka viðurkenningu á uppskeruhátíð FIA í vetur. reuters

Keppni Michaels Schumacher og Fernando Alonso er ekki að fullu lokið þótt sá fyrrnefndi sé hættur kappakstri og Alonso hafi orðið ofan á í uppgjöri þeirra á kappakstursbrautinni í fyrra. Þeir eru meðal íþróttamanna sem tilnefndir hafa verið til Laureus-verðlaunanna.

Lárusinn verður afhentur við athöfn í Barcelona 2. apríl en þar er um nokkurs konar “íþróttamaður heimsins” viðurkenningu að ræða. Schumacher hefur tvisvar unnið viðurkenninguna sem veitt verður áttunda sinni í ár.

Tenniskonurnar Amelie Mauresmo frá Frakklandi og Maria Sharapova frá Rússlandi, ásamt frönsku sundkonunni Laure Manaudou, sem vann fern gullverðlaun á EM í sundi í fyrra, eru meðal tilnefndra íþróttamanna. Verðlaunin hlaut svissneski tennisleikarinn Roger Federer í fyrra og er hann tilnefndur einnig nú, svo og bandaríski golfleikarinn Tiger Woods.

Veittur er Lárus í sjö flokkum en sigurvegarann í hverjum þeirra velur sérstök “Lárusarakademía” sem skipuð er 43 manns. Forseti akademíunnar, bandaríski grindahlauparinn fyrrverandi, Edwin Moses, segir 2006 hafa verið gott íþróttaár og því verði valið erfitt.

Í flokknum “lið ársins” er talið að atkvæði akademíumanna dreifist á nýsjálenska rúgbýliðið, Evrópuliðið í Ryder-bikarnum í golfi, Renaultliðið í formúlu-1 og heimsmeistaralið Spánverja í körfubolta. Þá eru heimsmeistarar Ítalíu í knattspyrnu og Spánarmeistarar Barcelona í fótbolta einnig tilnefndir til liðs ársins.

Auk þess sem íþróttamaður ársins og lið ársins hljóta Lárusa er styttan einnig veitt í flokki fatlaðra íþróttamanna, fyrir endurkomu ársins og fyrir óvæntasta afrek ársins. Meðal tilnefndra til hinna síðasttöldu er Lewis Hamilton, heimsmeistari í GP2-mótunum í fyrra og ökuþór McLaren í ár.

Það er 1.068 manna sveit blaðamanna í 128 löndum sem tilnefna til verðlaunanna.

Vel fór á með Alonso og Schumacher fyrir lokamót síðasta …
Vel fór á með Alonso og Schumacher fyrir lokamót síðasta árs. ap
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert