Montoya vinnur fyrsta NASCAR-sigurinn

Montoya fagnar í Mexíkó.
Montoya fagnar í Mexíkó. ap

Juan Pablo Montoya vann sinn fyrsta mótssigur í bandaríska NASCAR-kappakstrinum en mótið fór fram í Mexíkóborg í gær. Sigurinn er athyglisverðari sakir þess að hann féll niður í 21. sæti eftir vandræði í þjónustustoppi sem neyddu hann til aukastopps.

Sigurinn er sá fyrsti sem ökuþór frá rómönsku Ameríku vinnur í NASCAR og hefur Montoya innan við tug móta að baki frá því hann gekk til liðs við þessa vinsælustu akstursíþrótt Bandaríkjanna.

„Ég er virkilega ánægður," sagði Montoya eftir sigurinn en á lokahringjunum fékk hann þær upplýsingar frá liðsmönnum sínum að tæplega hefði hann nóg bensín til að komast alla leið á mark.

Það varpar skugga á sigurinn að Montoya nuddaði bíl sínum utan í bíl liðsfélaga síns, Scott Pruett, þegar sjö hringir voru eftir með þeim afleiðingum að hann snarsnerist. Tókst honum þó að halda áfram en varð fjórði.

„Mér þykir afar leitt hvað kom fyrir Scott. Við erum liðsfélagar og kepptum saman til sigurs í sólarhringskappakstrinum í Daytona. Ég bremsaði aðeins seinna en hann og sótti innfyrir hann. Það tókst og ég hélt hann sæi mig því hann fór nokkuð vítt en síðan beygði hann og ég hafði ekkert svigrúm. Ég reyndi að hægja á ferðinni en það var of seint,“ sagði Montoya.

Pruett var ekki ánægður. „Þetta var skítlegasta bragð sem ég hef séð frá nokkrum liðsfélaga. Hann var hraðskreiðari en ég og hefði hann beðið aðeins hefði hann siglt fram úr. Við ræddum um svona lagað á fundum en hann lék þetta samt,“ sagði hann.

Á síðustu fimm hringjunum sótti annar ökuþór, Denny Hamlin, hart að Montoya sem var með skemmdan framenda. Í sókn sinni rakst Hamlin tvisvar aftan á bíl Montoya sem varðist af öryggi og jók aftur forskotið í blálokin.

Montoya (t.v.) og Scott Pruett takast á um forystuna í …
Montoya (t.v.) og Scott Pruett takast á um forystuna í Mexíkó. ap
Montoya á ferð í Mexíkó.
Montoya á ferð í Mexíkó. ap
Scott Pruett vann ráspólinn í Mexíkó.
Scott Pruett vann ráspólinn í Mexíkó. ap
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert