Alonso hraðskreiðastur á fyrstu æfingu í Melbourne

Alonso var á regndekkjum lengst af æfingunni vegna rigningar.
Alonso var á regndekkjum lengst af æfingunni vegna rigningar. ap

Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá McLaren reyndist hraðskreiðastur á fyrri æfingu dagsins í Melbourne og þeirri fyrstu á keppnistíðinni. Brautirnar vor blautar lengst af vegna rigningar í nótt og ekki skipt yfir á þurrdekk fyrr en á síðustu mínútunum.

Alonso byrjaði titilvörnina af krafti og var 1,5 sekúndum fljótari með hringinn en næsti maður, Felipe Massa. Munurinn gefur þó ekki rétta mynd af stöðunni því flestir hröðustu tímarnir náðust í miklum hamagangi síðustu mínútur æfingarinnar en það var fyrst þá sem ökuþórarnir gátu ekið á þurrdekkjum.

Sebastian Vettel á BMW setti þriðja besta tímann en hann var fyrsti ökuþórinn út í brautina. Nýliðinn Lewis Hamilton hjá McLaren stóð sig vel og setti þanan fjórða besta, var rétt á undan landa sínum Jenson Button á Honda og varaþór Williams, Kazuki Nakajima.

Þrátt fyrir nýja æfingafyrirkomulagið á föstudögum, sem talið er til þess fallið að tryggja talsverðan akstur í brautinni, héldu nær allir ökuþórarnir sig inni í bílskúr fyrstu hálfu klukkustundina vegna bleytu.

Alonso lagði af stað þegar klukkustund af 90 mínútum lifði eftir en Ferraribílarnir birtust ekki fyrr en eftir klukkustund, þ.e. óku aðeins á síðustu 30 mínútunum. Kimi Räikkönen setti strax besta tímann og Massa þann næstbesta rétt á eftir.

Nick Heidfeld á BMW ók þá nokkra hraða hringi og sat á toppi tímalistans þegar rúmar 20 mínútur voru eftir. Brautin var þá tekin að þorna og setti hann næstum tveimur sekúndum betri tíma en Räikkönen. Fyrstur á þurrdekk var Mark Webber á Red Bull er sjö mínútur voru eftir. Setti hann strax fimm sekúndum betri tíma en Heidfeld en flaug síðan út úr brautinni á næsta hring.

Í hamaganginum sem á eftir fylgdi skiptust Button, Vettel og Massa á bestu tímum en er 40 sekúndur voru eftir lét Alonso vita af sér á ný og enginn bætti tíma hans. Massa gerði tilraun til þess en brautin var ekki greið vegna fjölda bíla í henni. Taldi hann Vitantonio Liuzzi á Toro Rosso hafa truflað sig og steytti í hann hnefa er hann komst fram úr.

Räikkönen náði heldur ekki hreinum hring á þurrdekkjum og endaði í aðeins 19. sæti. Hann hlaut síðan 200 evru sekt fyrir að aka 11,7 km/klst hraðar í bílskúrareininni en leyfilegt var.

Niðurstaða æfingarinnar varð sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Munur Hri.
1. Alonso McLaren 1:29.214 23
2. Massa Ferrari 1:30.707 +1.493 7
3. Vettel BMW 1:30.857 +1.643 22
4. Hamilton McLaren 1:30.878 +1.664 14
5. Button Honda 1:31.162 +1.948 15
6. Nakajima Williams 1:31.401 +2.187 21
7. Coulthard Red Bull 1:31.528 +2.314 9
8. Kovalainen Renault 1:31.571 +2.357 20
9. Webber Red Bull 1:31.661 +2.447 16
10. Barrichello Honda 1:31.737 +2.523 12
11. Sato Super Aguri 1:31.782 +2.568 7
12. Fisichella Renault 1:32.011 +2.797 14
13. Wurz Williams 1:32.194 +2.980 18
14. Sutil Spyker 1:34.043 +4.829 26
15. Liuzzi Toro Rosso 1:34.627 +5.413 8
16. Albers Spyker 1:35.055 +5.841 10
17. Heidfeld BMW 1:37.249 +8.035 12
18. Davidson Super Aguri 1:39.221 +10.007 6
19. Räikkönen Ferrari 1:39.242 +10.028 7
20. R.Schumacher Toyota 1:39.550 +10.336 9
21. Speed Toro Rosso 1:41.763 +12.549 9
22. Trulli Toyota 1:44.130 +14.916 11
Barrichello á ferð á Hondabílnum á fyrri æfingunni í Melbourne.
Barrichello á ferð á Hondabílnum á fyrri æfingunni í Melbourne. ap
Vitantonio Liuzzi fylgist með æfingu í Melbourne í bílskúr Toro …
Vitantonio Liuzzi fylgist með æfingu í Melbourne í bílskúr Toro Rosso-liðsins. ap
Mark Webber missir Red Bull-bílinn út úr blautri brautinni í …
Mark Webber missir Red Bull-bílinn út úr blautri brautinni í Melbourne. ap
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert