Sex ökuþórar af 22 voru dregnir út til að gangast undir lyfjapróf í franska kappakstrinum. Var tekið af þeim þvagsýni til rannsóknar í gær, föstudag.
Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóða akstursíþróttasambandinu (FIA) gengust undir prófið þeir Kimi Räikkönen hjá Ferrari, Rubens Barrichello hjá Honda, Robert Kubica hjá BMW, Nico Rosberg hjá Williams, Vitantonio Liuzzi hjá Toro Rosso og Anthony Davidson hjá Super Aguri.