McLaren úthýsir Ferrarifólki

Ferrarimenn eru óvelkomnir í mótorheimili McLaren og aðra móttökusali á …
Ferrarimenn eru óvelkomnir í mótorheimili McLaren og aðra móttökusali á mótum. mbl.is/Ágúst Ásgeirsson

Stjórnendur McLarenliðsins hafa lagt bann við komu liðsmanna Ferrari í móttökusali sína á mótum af ótta við nýtt njósnahneyksli, ef marka má frásögn spænska blaðsins El Mundo Deportivo.

Blaðið segir að Jean Todt, liðsstjóri Ferrari, hafi fengið bréf þessa efnis frá McLaren fyrir 10 dögum.

Ennfremur segir í fréttinni, að mælst hafi verið til við starfsmenn McLaren að þeir gefi sig ekki á tal við starfsfólk Ferrari á keppnishelgum.

Todt er sagður hafa skrifað starfsbróður sínum Ron Dennis til baka og tjáð honum, að liðsmenn McLaren væru áfram velkomnir í móttökusali Ferrari á kappakstursbrautum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert