Gríðarleg keppni átti sér stað um ráspól tyrkneska kappakstursins og skipti hann nokkrum sinnum um hendur í lokalotunni. Eftir spennandi og harðan slag hafði Felipe Massa hjá Ferrari betur gegn ökumönnum McLaren. Heikki Kovalainen varð annar og Lewis Hamilton þriðji.
Með þessu styrkti Massa stöðu sína vel í tilraunum til að vinna tyrkneska kappaksturinn þriðja árið í röð. Fyrri árin tvö hóf hann einnig keppni fremstur og ók í bæði skipti til öruggs sigurs.
Félagi hans Kimi Räikkönen átti erfitt uppdráttar í lokalotunni, gerði þá m.a. akstursmistök í beygjum og varð að sætta sig við fjórða sætið.
Kovalainen og Hamilton beittu hvor sinni áætluninni í lokalotunni, Hamilton notaði harðari dekkin í báðum tímatilraunum sínum en Kovalainen þau mýkri í seinni tilrauninni. Þau reyndust betri því hann bætti tíma sinn talsvert; komst fram úr Hamilton og sat hann í nokkrar sekúndur á ráspól, eða þar til Massa lét til skarar skríða á síðustu stundu.
Robert Kubica á BMW varð fimmti og fjórum sætum á undan liðsfélaga sínum Nick Heidfeld sem varð níundi.
Red Bull kom báðum bílum í lokalotuna í fyrsta sinn á árinu. Mark Webber og David Coulthard tóku hins vegar aðeins eina tímatilraun í lokalotunni, líklega til að spara bensín til kappakstursins.
Jarno Trulli breytti ekki út af þeirri venju að komast í lokalotuna, það hefur hann gert í öllum mótum ársins. Liðsfélagi hans Timo Glock varð hins vegar fimmtándi.
Fernando Alonso var með fjórða besta tímann eftir fyrri tímatilraunina í lokalotunni en hélt þeirri stöðu ekki, varð sjöundi.
Rubens Barrichello gat ekki haldið upp á metkappakstur sinn með því að komast í lokalotuna. Hann hefur þó 257. sitt einu sæti framar en liðsfélagi hans Jenson Button, þar sem Hondurnar urðu í 12. og 13. sæti.
Niðurstaða tímatökunnar varð annars sem hér segir:
Röð | Ökuþór | Bíll | Lota 1 | Lota 2 | Lota 3 | Hri. |
---|---|---|---|---|---|---|
1. | Massa | Ferrari | 1:25.994 | 1:26.192 | 1:27.617 | 16 |
2. | Kovalainen | McLaren | 1:26.736 | 1:26.290 | 1:27.808 | 16 |
3. | Hamilton | McLaren | 1:26.192 | 1:26.477 | 1:27.923 | 15 |
4. | Räikkönen | Ferrari | 1:26.457 | 1:26.050 | 1:27.936 | 17 |
5. | Kubica | BMW | 1:26.761 | 1:26.129 | 1:28.390 | 17 |
6. | Webber | Red Bull | 1:26.773 | 1:26.466 | 1:28.417 | 17 |
7. | Alonso | Renault | 1:26.836 | 1:26.522 | 1:28.422 | 18 |
8. | Trulli | Toyota | 1:26.695 | 1:26.822 | 1:28.836 | 20 |
9. | Heidfeld | BMW | 1:27.107 | 1:26.607 | 1:28.882 | 20 |
10. | Coulthard | Red Bull | 1:26.939 | 1:26.520 | 1:29.959 | 16 |
11. | Rosberg | Williams | 1:27.367 | 1:27.012 | 13 | |
12. | Barrichello | Honda | 1:27.355 | 1:27.219 | 13 | |
13. | Button | Honda | 1:27.428 | 1:27.298 | 14 | |
14. | Vettel | Toro Rosso | 1:27.442 | 1:27.412 | 15 | |
15. | Glock | Toyota | 1:26.614 | 1:27.806 | 15 | |
16. | Nakajima | Williams | 1:27.547 | 9 | ||
17. | Piquet | Renault | 1:27.568 | 7 | ||
18. | Bourdais | Toro Rosso | 1:27.621 | 8 | ||
19. | Fisichella | Force India | 1:27.807 | 10 | ||
20. | Sutil | Force India | 1:28.325 | 9 |