Max Mosley, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA), hlaut traust til að gegna áfram starfi á sérstökum aukafundi sambandsins í París í dag.
Í tilkynningu frá FIA um niðurstöður atkvæðagreiðslu um traustsyfirlýsingu við Mosley segir að tillagan hafi verið samþykkt með 103 atkvæðum gegn 55. Sjö fulltrúar greiddu ekki atkvæði og fjögur atkvæði voru ógild.