Kubica: „Fólk mun fljótt gleyma Ferrari"

Kubica í bílskúr BMW.
Kubica í bílskúr BMW. reuters

Robert Kubica ökumaður BMW hefur engar áhyggjur þótt Ferrari og fleiri lið bílaframleiðenda hyrfu úr formúlu-1. „Fólk mun gleyma þeim fljótlega,“ segir hann við Reuters-fréttastofuna.

„Það er ekki langt síðan flest liðanna heyrðu engu bílafyrirtæki til. Þau sáu þeim fyrir mótorum en liðin voru rekin af óháðum einkaaðilum. Ef það er engin  Ferrari eða annar bílsmiður mun fólk gleyma þeim fljótt,“ sagði Kubica í Mónakó í dag.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert