Räikkönen hraðskreiðastur á fyrstu æfingu

Kimi Räikkön­en gat vart hafið end­ur­komu sína í formúlu-1 bet­ur en í dag er hann ók hraðast við fyrstu bíl­próf­an­ir árs­ins. Besti hring­ur hans var betri en nokk­ur æf­inga­hring­ur í Jerezbraut­inni allt síðastliðið ár.

Heims­meist­ar­inn frá 2007 var hraðskreiðast­ur frá byrj­un og var aldrei á æf­ing­unni velt úr fyrsta sæti.  Næst fljót­ast­ur varð Skot­inn Paul di Resta hjá Force India sem var ann­ar tveggja ökuþóra sem lögðu rúma 100 hringi að baki í dag. Var hann á end­an­um 0,1 sek­úndu á eft­ir Räikkön­en.

Nico Ros­berg hjá Mercedes, á umbreytt­um bíl frá í fyrra, setti þriðja besta tím­ann og þann fjórða besta átti Mark Webber hjá Red Bull. Hann gat ekki hafið æf­ing­ar strax í morg­un þar sem íhlut­ar í bíl­inn skiluðu sér ekki í tæka tíð frá bílsmiðjunni í Englandi.

Kamui Kobayashi hjá Sauber varð fyr­ir því er hálf­tími var eft­ir af æf­ing­unni að bens­ín­tankur­inn tæmd­ist svo hann varð að leggja bíln­um við braut­arkant.

Jen­son Butt­on á McLar­en og Felipe Massa á Ferr­ari létu ekki mikið til sín taka, urðu í átt­unda og ní­unda sæti.

RöðÖkuþórBíllTímiBilHri.
1. Kimi Räikkön­en Lot­us 1:19.670 73
2. Paul di Resta Force India 1:19.772 +0.102 101
3. Nico Ros­berg Mercedes 1:20.219 +0.549 56
4. Mark Webber Red Bull 1:20.496 +0.826 53
5. Daniel Ricciar­do Toro Rosso 1:20.694 +1.024 57
6. Michael Schumacher Mercedes 1:20.794 +1.124 41
7. Kamui Kobayashi Sauber 1:21.353 +1.683 106
8. Jen­son Butt­on McLar­en 1:21.530 +1.860 60
9. Felipe Massa Ferr­ari 1:22.815 +3.145 69
10. Heikki Kovalain­en Ca­ter­ham 1:23.178 +3.508 28
11. Pastor Maldona­do Williams 1:23.371 +3.701 25
11. Pedro de la Rosa Hispania 1:23.676 +4.006 44
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert