„Ég skrifaði undir hjá Mercedes í sumar og á þeim tíma sá ég framtíð mína með liðinu en síðan kom þetta tækifæri og ég tók þessa ákvörðun,“ sagði Lewis Hamilton sem yfirgefur Mercedes og mun keyra fyrir Ferrari á næsta Formúlu-1 tímabili.
„Þetta var erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið, ég hef verið hjá liðinu í 26 ár og þetta hefur verið ótrúlegur tími og við höfum gert ótrúlega hluti. Það er eitthvað sem ég er mjög stoltur af en mér finnst tími kominn til þess að hefja næsta kafla,“ sagði Hamilton en félagsskiptin komu mörgum á óvart.
"I'm very proud of what we've achieved but ultimately I'm writing my story and it was time to start a new chapter"
— Formula 1 (@F1) February 23, 2024
Lewis Hamilton reveals the thinking behind his decision to join Ferrari for the 2025 season #F1 pic.twitter.com/qE62sHEWos