Íslendingar töpuðu fyrir Brasilíumönnum, 6:1, í vináttulandsleik í knattspyrnu sem háður var í nótt að íslenskum tíma í borginni Cuiabá í Brasilíu. 50.000 áhorfendur sáu sambastrákana sína taka ungt og reynslulítið íslenskt lið í kennslustund í íþróttinni og mátti íslenska liðið þakka fyrir að hafa ekki tapað stærra því bæði varði Árni Gautur Arason oft meistaralega í markinu auk þess sem Brasilíumenn áttu þrjú skot sem rötuðu í markstangirnar.
Guðmundur Hilmarsson skrifar frá Brasilíu.