Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari í knattspyrnu hefur gert eina breytingu á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Dönum í undankeppni HM sem hefst á Laugardalsvellinum kl. 18.05. Hjálmar Jónsson, leikmaður IFK Gautaborg, kemur í staðinn fyrir Hannes Þ. Sigurðsson.
Byrjunarliðið er þá þannig skipað: Árni Gautur Arason - Grétar Rafn Steinsson, Ívar Ingimarsson, Hermann Hreiðarsson, Indriði Sigurðsson - Kári Árnason, Jóhannes Karl Guðjónsson, Brynjar Björn Gunnarsson, Hjálmar Jónsson - Eiður Smári Guðjohnsen, Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Varamenn eru Kristján Finnbogason, Helgi Valur Daníelsson, Kristján Örn Sigurðsson, Stefán Gíslason, Heiðar Helguson og Veigar Páll Gunnarsson. Þeir Ólafur Örn Bjarnason og Hannes Þ. Sigurðsson eru ekki í leikmannahópnum að þessu sinni.