Danir unnu Íslendinga 2:0 í leik liðanna í undankeppni EM 2008 á Laugardalsvelli í kvöld. Danir skoruðu tvívegis í fyrri hálfleiknum og gerðu svo nákvæmlega það sem þeir þurftu að gera í síðari hálfleik, ekkert meira. Íslenska liðið náði sér ekki á strik í leiknum enda voru Danir baráttuglaðir og gáfu íslensku leikmönnunum lítinn tíma til athafna.