Margrét Lára Viðarsdóttir er hætt hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Duisburg. Margrét staðfesti þetta í samtali við fréttavefinn sudurland.is en vildi ekki tjá sig um ástæðu þess. Hún bætti því við að það hefði ekki verið neitt mál að fá sig lausa undan samningi hjá Duisburg.
„Það má segja að þetta hafi komið nokkuð snögglega upp á en þegar það gerðist var ekki mikið mál að fá mig lausa undan samningnum hjá Duisburg. Annars vil ég ekkert ræða um ástæðu þess að ég hætti þarna úti og ég veit í raun ekkert hvað tekur við hjá mér núna. Ég ætla að skoða mín mál mjög vel og ákveð framhaldið fljótlega. Nú er bara að halda sér í formi," sagði Margrét.
Margréti hafði gengið vel hjá Duisburg, sem er efst í þýsku deildinni og komið í undanúrslit bikarkeppninnar. Margrét hafði leikið þrjá bikarleiki með liðinu og skorað tvö mörk en hún mátti aðeins leika í bikarkeppninni fram að áramótum vegna félagsskiptareglna.