Osasuna og Barcelona gerðu nú í kvöld markalaust jafntefli í lokaleik 21. umferðarinnar í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu. Eiður Smári Guðjohnsen fékk ekki að spreyta sig með Evópu-og Spánarmeisturunum en Kamerúninn Samuel Eto'o lék sex síðustu mínúturnar en þetta var fyrsti leikur hans með liðinu frá því hann meiddist á hné í lok september.
Barcelona hefur 43 stig í efsta sæti, Sevilla hefur 42, Valencia hefur 39 stig og Real Madrid 38.