KR-ingar steinlágu gegn Lilleström

Teitur Þórðarson þjálfari KR sá sína menn tapa fyrir Lilleström …
Teitur Þórðarson þjálfari KR sá sína menn tapa fyrir Lilleström í dag. Ómar Óskarsson

Norska knattspyrnuliðið Lilleström vann í dag stórsigur á KR, 5:0, á alþjóðlega mótinu sem nú stendur yfir á La Manga á Spáni. Viktor Bjarki Arnarsson, fyrrum leikmaður Víkings, lék síðustu tíu mínúturnar með Lilleström. KR, sem áður tapaði 0:1 fyrir Vålerenga, spilar við Brann á laugardaginn og mætir síðan Rosenborg í sínum síðasta leik á mótinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert