Sevilla upp að hlið Barcelona

Frederic Kanoute fagnar fyrra marki sínu fyrir Sevilla í kvöld.
Frederic Kanoute fagnar fyrra marki sínu fyrir Sevilla í kvöld. Reuters

Sevilla komst í kvöld upp að hlið Barcelona í toppsæti spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þegar liðið sigraði Atletico Madrid, 3:1. Frederic Kanoute skoraði tvö marka Sevilla og hann er þar með orðinn markahæstur á ný. Kanoute hefur skorað 18 mörk en Ronaldino, sem skoraði mark Börsunga gegn Valencia fyrr í kvöld, kemur næstur með 16 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert