Knattspyrnuliðin Barcelona og Liverpool mætast í Meistaradeild Evrópu í Liverpool á morgun. Þetta er síðari leikur liðanna en Liverpool vann fyrri leikinn 2:1 á heimavelli Barcelona, sem verður því að taka á honum stóra sínum ætli liðið að verja Evrópumeistaratitilinn. Eiður Smári Guðjohnsen, Ronaldinho og aðrir leikmenn Barcelona komu til John Lennon flugvallarins í Liverpool í dag og voru glaðir og reifir eins og sést á meðfylgjandi mynd.