Þegar 45 mínútur eru þar til að landsleikur Spánverja og Íslendinga hefst á ONO Estadi leikvanginum á Mallorca er enn úrhellisrigning og á undanförnum mínútum hefur úrkoman heldur aukist. Pollar eru fyrir framan bæði mörkin og völlurinn er blautur og þungur. Íslensku leikmennirnir eru flestir farnir að hita upp en spænska liðið er enn ekki komið út á völlinn.