Eiður Smári Guðjohnsen kom ekkert við sögu í liði Barcelona sem sigraði Deportivo La Coruna, 2:1, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Samuel Eto'o og Lionel Messi komu Börsungum í 2:0 á 45. og 51. mínútu í 2:0 en Adrian minnkaði muninn fyrir gestina 20 mínútum fyrir leikslok.
Barcelona náði þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar. Liðið hefur 56 stig en Sevilla hefur 53 en á leik til góða.