Valencia er enn með í baráttunni um spænska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir 2:0 sigur á Recreativo Huelva, 2:0, í kvöld. Joaquin skoraði bæði mörkin fyrir Valencia sem er í fjórða sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir Barcelona sem trónir á toppnum en á leik til góða eins og Sevilla og Real Madrid sem eru í öðru og þriðja sæti.