Barcelona beið í kvöld herfilega útreið gegn Getafe í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Getafe burstaði Barcelona, 4:0, og er þar með komið í úrslitaleikinn gegn Sevilla. Barcelona hafði betur í fyrri leiknum, 5:2, en Getafe hafði betur samanlagt, 6:5. Eiður Smári lék síðasta hálftímann fyrir Börsunga.