Keppni í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu hefst í kvöld með þremur leikjum. Íslandsmeistarar Vals hefja titilvörnina gegn Stjörnunni á Valbjarnarvelli, Keflavík tekur á móti Þór/KA suður með sjó og í Grafarvogi eigast við nýliðarnir Fjölnir og Fylkir. Allir leikirnir hefjst klukkan 19.15 en umferðinni lýkur svo annað kvöld með leik Breiðabliks og KR.