Theódór Elmar Bjarnason er í leikmannahópi skosku meistaranna í Celtic sem mæta Dunfermline í úrslitaleik skosku bikarkeppninnar í knattspyrnu á Hampden Park í Glasgow í dag. Leikur liðanna hefst klukkan 14.00.
Elmar fékk sitt fyrsta tækifæri með aðalliði Celtic um síðustu helgi en þá hvíldi Gordon Strachan knattspyrnustjóri marga af lykilmönnum sínum. Hann hældi Elmari sérstaklega fyrir frammistöðu sína þar og sagði að hann hefði verið ljósið í myrkrinu hjá Celtic í þeim leik.
Strachan valdi 21 leikmann í hóp sinn fyrir bikarúrslitaleikinn í dag og nú um hádegisbilið gaf hann út endanlegan 16 manna hóp þar sem Elmar var fyrir valinu sem einn þeirra sem fá sæti á varamannabekknum.