Kolbeinn Sigþórsson, knattspyrnumaðurinn ungi úr HK, skrifaði í morgun undir þriggja ára atvinnusamning við hollenska félagið AZ Alkmaar. Kolbeinn, sem er 17 ára gamall, hefur verið mjög eftirsóttur hjá erlendum félögum eftir góða frammistöðu með íslenska drengjalandsliðinu en hann hefur æfingar með félaginu í byrjun júlí. Kolbeinn staðfesti þetta við fréttavef Morgunblaðsins og sagði afar spennandi að gerast leikmaður með Alkmaar sem varð í öðru sæti í hollensku úrvalsdeildinni í vetur og lék til úrslita í bikarkeppninni.