Argentína sigraði Perú, 4:0, í síðasta leik 8-liða úrslitanna í S-Ameríkukeppninni í knattspyrnu. Staðan var markalaus í hálfleik en Carlos Tevez hleypti mikli lífi í leik Argentínumanna þegar honum var skipt inná í hálfleik og áður en yfir lauk höfðu Argentínumenn skorað fjórum sinnum. Juan Roman Riquelme skoraði tvívegis og þeir Lionel Messi og Javier Mascherano sitt markið hver en Tevez átti þátt í þremur markanna.
Undanúrslitin hefjast á miðvikudaginn en þá leika Úrúgvæ og Brasilía og á fimmtudaginn leika Argentína og Mexíkóþ