Bikarmeistarar Keflavíkur drógust á móti Breiðabliki í 8-liða úrslitum Visa bikarkeppni karla í knattspyrnu en það var verið að draga í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardag. Leikurinn skal fara fram á Kópavogsvelli. Þá mætast tvö efstu lið Landsbankadeildar karla, Valur og FH á Laugardalsvelli. Fylkir fær ÍA í heimsókn og Fjölnir leikur við Hauka á Grafarvogsvelli.
Fylkir og ÍA spila 12. ágúst, líkt og Breiðablik og Keflavík, en hinir tveir leikirnir verða spilaðir degi síðar. Í undanúrslitum kvenna dróst Keflavík á móti Fjölni annarsvegar og Breiðablik gegn KR hinsvegar. Þeir leikir eiga að fara fram í Keflavík og á Kópavogsvelli 21. ágúst.